sunnudagur, júlí 25, 2004

Jæja, löngu orðið tímabært að taka til í linkunum. Sjaldbloggarar fá að fjúka og inn koma í staðinn nokkrar kollegíkerlingar, misbloggglaðar, sjáum bara til, ég hendi þeim bara út sem blogga of sjaldan fyrir minn smekk! Hohohoho.... 

Hef svo ákveðið að leyfa furðukörlunum í Croisztans að hanga þarna á hægri vængnum.

fimmtudagur, júlí 22, 2004

22. júlí

Í dag er sá dagur ársins sem minnir mig á hversu stutt lífið er eða getur verið. Dagurinn sem ég leyfi mér að vera væmin, heimspekileg, hugsi, sorgmædd, dramatísk. Í þriðja skiptið upplifi ég þennan furðulega dag sem þó er aldrei eins, ekkert frekar en aðrir dagar. Hræðileg lífsreynsla getur þrátt fyrir allt skilið eitthvað jákvætt eftir sig, það skil ég betur og betur eftir því sem tíminn líður. Sagt er að tíminn lækni öll sár, ég veit ekki hvort það sé satt. Hann leggur kannski til sárasmyrsl og plástur en ég efast um að sárið grói nokkurntíma. Ætli maður fái ekki snyrtilegt ör í besta falli.
Einmitt vegna þess hversu lífið er stutt borgar sig að vanda sig. Vanda sig í samskiptum við aðra. Ætti maður ekki að koma fram við fólk eins og það væri í síðasta skipti sem maður sæji það? Á þessum degi fyrir fjórum árum ákvað ég að gera það. Ég er ekki fullkomin frekar en nokkur annar. Þó maður nái ekki að gera það í hvert einasta skipti, eru einhver skipti betri en engin. Það er hollt að hugsa til þess að við manneskjurnar erum allar eins í raun. Öll þráum við það sama, hamingju. Við erum öll í hamingjuleit, við notum bara mismunandi aðferðir. Vitneskjan um þetta, held ég að sé mikilvæg uppistaða í hamingjuuppskriftina, sé hún yfirhöfuð til.

þriðjudagur, júlí 20, 2004

nei ó nei o nei...stuðið ekki komið.  Þvert á móti, andleysi og almennur leiðindadoði. Kannski á maður ekkert að vera að blogga um það. Mér er skítsama, læt það bara flakka. Eina leiðin er uppávið úr þessu, vonandi.

sunnudagur, júlí 18, 2004

Djö...var búin að skrifa einhvern slatta um ekkert og tókst að þurrka það út. Ég er of fúl núna til að gera það aftur. Ætlaði að bæta inn fullt af nýjum linkum og allt. Geri það bara á morgun ef ég verð í stuði.
 
Stuðkveðjur,
Reg.

föstudagur, júlí 16, 2004

Lengi má gott bæta!
 
Hei kúl, komnir nýjir fídusar í Bloggerinn. Nú getur maður farið að leika sér með allskonar stílbrigði.
 
Ég var annars að velta því fyrir mér um daginn hvað Ísland gæti verið enn yndislegra land en það er, bara með smá "lagfæringum". Ég er ekki ein af þeim sem lifi í þeirri blekkingu að Ísland sé ömurlegt og allt betra í útlöndum, það eru auðvitað kostir og gallar við alla staði, í misjöfnu hlutfalli. Ég held að kostirnir við Ísland séu þrátt fyrir allt fleiri en gallarnir. Ef ég ætti að skrifa óskalista yfir það sem betur mætti fara, liti hann einhvervegin svona út: 
 

  1. Vildi óska að það væru betri strætósamgöngur, hann gengi oftar, það væru fleiri leiðir, skólafólk , börn og gamalmenni fengju ókeypis í strætó. Þetta sparar auðvitað bílaútgjöldin, minnkar umferðina, mengunina og stressið. Plús að það mætti gera meira ráð fyrir hjólafólki úti í umferðinni. Það væri líka svalt ef lestir væru til.
  2. Leikskólar væru helst ókeypis eða að minnsta kosti væru gjöldin tekjutengd. Maður á ekki að þurfa að fara á hausinn við að eiga barn/börn á leikskólaaldri.
  3. Grænmetis og ávaxtamarkaðir út um allt og það ÓDÝRT!!! -Skilar af sér hamingjusamara og heilbrigðara fólki, sparar heilbrigðiskerfinu geðveikan pening sem má þá nota t.d. í menntamál í staðinn, eykur langlífi og skilar þ.a.l. meiri pening í þjóðarbúið.
  4. Mig vantar almennilega útvarpsstöð með alvöru dagskrárgerð, playlistar og Björgvin Halldórsson bannaðir takk fyrir!
  5. LÆGRA MATVÖRUVERÐ!
  6. Júlí á alltaf að vera heitur að minnsta kosti.
  7. Blómstrandi líf úti á landi, þar á að vera eftirsóknarvert að búa.
  8. Tannlækningar ættu að vera ókeypis.
  9. Enginn lifir undir fátæktarmörkum, eldri borgarar, öryrkjar og aðrir sem ekki geta séð fyrir sér sjálfir eiga að hafa mannsæmandi pening á milli handanna.
  10. Virkjanir bannaðar á Íslandi.
  11. Ódýrara áfengi og blóm líka og skór.
  12. Sjálfstæðisflokkurinn væri minnsti flokkur landsins.

-ég man ekki fleira í bili...

 

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Ég er lasin og allt er leiðinlegt.

mánudagur, júlí 12, 2004

Alltaf endalaus gleði úti, grátt og blautt. Ég er hætt að fylgjast með veðurspám, nennusiggi. Hér eru annars stórtækar heimilisaðgerðir í gangi, ekki bara hin hefðbundna tiltekt, heldur líka í hillum og skúffum og skápum. Ohhh, hvað það verður ljúft þegar því er lokið. Þá verður ekkert rusl og ég veit upp á hár hvar hver einasti hlutur verður. Jess! Já, það er svei mér þá að verða kósí hérna. Gardínurnar loksins komnar upp sem ég er örugglega búin að vera mánuð að sauma, eða ekki sauma hehehe...

Hugmyndirnar snjöllu eru enn í hausnum á mér og ég hef sett mér það markmið að byrja á annarri þeirra þegar mér finnst nóg komið af heimilisaðgerðum. Hlakka til!

laugardagur, júlí 10, 2004

Það kveiknaði á ljósaperunni!

Ahhh...ég fékk svo góða hugmynd að mig verkjar! Hún er bara algert leyndarmál því að ég veit að henni verður stolið ef ég kjafta frá, hún er það brillijant. Namm, hvað ég hlakka til. Ótrúlegt að enginn hafi fattað að gera þetta áður. Hei, bíddu, þær eru reyndar tvær. Skyldar en þó ólíkar. Brillijant segi ég....heheheh.
-En það er langur vegur frá góðri hugmynd og útkomunni sjálfri. Ég verð að vanda mig og síðast en ekki síst framkvæma! Ekki bara hugsa, heldur gera! Þarf líka að fá aðstoð frá góðu fólki. Sem betur fer þekki ég fullt af svoleiðis. Kannski verð ég fræg, eða lúser. Hverjum er ekki sama? -Ég fæ a.m.k. prik hjá sjálfri mér fyrir að hafa framkvæmt. Kannski tekur þetta nokkra mánuði eða nokkur ár. Hverjum er ekki sama? -Bara að ég klári þetta.

Nú er ég farin aftur að sofa.

föstudagur, júlí 09, 2004

Er veður afstætt?

Mikið skelfing er gott þegar himininn hættir að gráta og jafn skelfilega leiðinlegt þegar hann byrjar aftur og aftur og aftur. Ætlar þetta engan endi að taka?
- Annars á maður ekkert að vera að ergja sig á því sem maður ræður ekki við. Á Íslandi tók ég stundum til bragðs, í slæmum veðrum, að draga fyrir alla glugga, setja suðræna tónlist undir geislann, opna rauðvínsflösku og elda einhvern rétt frá heitu landi. Það var sko alveg gott veður hjá mér, bara ef ég vildi það!

sunnudagur, júlí 04, 2004

Ó, mig auma!

Líkamlegir kvillar hafa rænt mig blogggleðinni. Ég reyni að hugsa til Beethovens, Rosewelt og Christofers Reeve sem létu ekkert stoppa sig og áttu meira að segja miklu erfiðara en ég.

Ég hrekk í gang áður en ég veit af.

föstudagur, júlí 02, 2004

Gamla landið

Stóri himininn, ferska loftið, sumarlyktin, kyrrðin, sjórinn, krían, fjöllin, bíltúr út úr bænum, Flatey og Breiðafjörðurinn, amma og afi, fólkið mitt, miðbærinn, garðurinn minn, nammið, vatnið, skyrið, harðfiskurinn, kjötsúpan hennar mömmu, flatkökur með hangikjöti, fjölskylduboð, jólin...

laugardagur, júní 26, 2004

Fólk er fífl!

Nú er ég hætt að skilja. Ég sem ætlaði að vera svo obboðslega dönsk og pottþétt og var það líka en allt kom fyrir ekki. Sendi boðskortin með 10 daga fyrirvara með idiotproof leiðbeiningum og skrifaði meira að segja s.u. (svar udbedes=svar óskast) senest torsdag d.24.juni! Jú, einn afboðaði sig og þá gerði ég auðvitað ráð fyrir hinum. Þetta endaði í 5 strákum af 12. Aumingja afmælisbarnið vildi enn bíða eftir gestunum þegar 40 mínútur voru liðnar af afmælinu, alveg viss um að þeir væru á leiðinni. Þegar hann sagði "þetta er ömurlegt", langaði mig bara að segja "já veistu það ástin mín, að fólk er fífl"!

Sem betur fer rættist úr og hann varð ánægður með daginn þrátt fyrir allt. Næst býð ég bara fíflunum símleiðis.

fimmtudagur, júní 24, 2004

Frumburðinum spillt!

Deginum var eytt í Field´s þar sem keyptar voru afmælisgjafir handa afmælisbarninu. Snáði er ekki heima, er búinn að vera í ferðalagi síðan á þriðjudag og kemur loksins heim á morgun. Hann græddi aldeilis á því að vera ekki heima á afmælisdaginn sinn, því foreldrarnir söknuðu hans svo mikið að þeir gátu ekki hætt að kaupa gjafir. Þetta endaði í sjö pökkum! Við hlökkum hrikalega til að fá hann heim í afmælisköku og pakkaopnanir. Var að fatta að þetta er hans síðasta afmæli sem einkabarn og kannski ágætt að hann fái gjafir eftir því.

miðvikudagur, júní 23, 2004

Hinn heittelskaði fékk hádegismat og fatakaup í H&M í afmælisgjöf. Loksins fékk ég hann til að kaupa sér öðruvísi buxur en gallabuxur.

Mikið gerir grámyglurigning mig syfjaða.

þriðjudagur, júní 22, 2004

Auðvitað reddaði kerlingin þessu með kökuna. Fann gamlan Føtex-flöskumiða og seldi fleiri flöskur og gat þannig keypt í kökuna. Hann fattar þetta reyndar á bökunarlyktinni þegar hann kemur heim en það er allt í lagi. Hún kemur líka á óvart.

Tókuð þið eftir þessu? Rock on Morrissey!

Og að lokum þetta: Heja Sverige!

Oj, ég er ömurleg kærasta. Í öll þau 10 ár sem við S höfum verið saman, get ég talið á fingrum annarar handar hversu oft ég hef gefið greyjinu afmælisgjöf. Mér datt reyndar í hug sálfræðileg skýring á þessari leiðinlegu hegðun minni. Nefninlega að ég á afmæli á aðfangadag og kann einfaldlega ekki á þessa afmælishluti. Lélegt? Kannski.
Hann á afmæli á morgun og ég í klípu. Ég var búin að ákveða að nota tækifærið í kvöld á meðan hann er að vinna og baka köku handa honum. Nei, tókst að klúðra því. Ég gleymdi nebbla að fara í bankann og skipta ávísuninni feitu, þannig að ekkert verður úr kökubakstri, í kvöld að minnsta kosti.
Svo er stóra spurningin...hvað í andskotanum á ég að gefa honum? Nú ætla ég ekki að klikka! Hann skal fá sinn afmælispakka á morgun og hananú!

mánudagur, júní 21, 2004

Skin og skúrir.

Þessu mega óléttar konur hreinlega ekki við.
-Að fá óvæntan feitan tékka frá kommúnunni og vondar peningafréttir frá kommúnunni sama dag. Hormónarnir dansa trylltan stríðsdans og fjölskylda mín er ótrúlega heppin að vera ekki heima núna til að verða ekki fyrir barðinu á mér.
Þá er besta ráðið að leggjast aðeins í rúmið og grenja úr sér mestu gremjuna. Passa sig á því að vera ekki of lengi að því, svo ekki myndist það slæmir pokar undir augunum að maður komist ekki út í búð til að færa björg í bú. Slökkva svo á vandamálunum með því að kveikja á tölvunni og skella sér á vit netheimsins og lesa um líf og pælingar annarra.
Ætli ég hafi misst af The Bold and the Beautiful? Það er fátt eins passandi verandi á bömmer.

laugardagur, júní 19, 2004

Maður getur alltaf á sig blómum bætt. Hér kemur eitt, frændi minn skilst mér. Þrælskemmtilegur finnst mér.

Hjúkk, nú get ég loksins horft á fréttir stöðvar tvö.

Ég var þarna frá kl.13 til 20 og var ekki vör við 700 manns. Þetta var annars fín skemmtun og satt er að það rættist úr veðrinu. Úrhellisrigning breyttist í sólarglætu með smá rigningu sem mér finnst alltaf frekar súr upplifun en skemmtileg þó.

fimmtudagur, júní 17, 2004

Ég á ekki til orð!

Ég þori ekki að linka beint á síðuna en þið verðið að smella á linkinn sem Fellibylur gefur upp í pósti sínum, dagsettan 14. júní.