vá hvad er erfitt ad halda einbeitingunni í thessu vedri
fimmtudagur, maí 04, 2006
miðvikudagur, maí 03, 2006
Hef aldrei skilid...
-manneskjan sem ákvad ad strákahjól skyldu vera med støng, hlýtur ad hafa ruglast eitthvad í ríminu...thetta bara meikar engan sens
Skrifaði Regína klukkan 19:28 |
sunnudagur, apríl 30, 2006
fimmtudagur, apríl 27, 2006
Jæja, skrifin ganga hægt. Ég er búin að rekast á allskonar ófyrirséð vandamál og vesen en það er kannski það sem ég læri mest af. Ég er samt ennþá bjartsýn og held að þetta verði bara ágætis ritgerð þrátt fyrir allt. Það er gott að vera stressuð og undir tímapressu, það bara rekur mig áfram.
Ég er svo upptekin af þessu að ég hef ekki orku í neitt annað, varla að borða, hvað þá að æsa mig yfir sumum hálfvita baunum sem eru að kafna úr leiðinlegheitum og yfirgangi hér á kollegíinu. Ég er hvort eð er að flytja héðan eftir nokkra mánuði og get þá bara haft hlutina þar sem ég vil hafa þá og hegðað mér á þann hátt sem ég vil hegða mér án þess að það verði slideshow um það og hótanir um útburð.....jibbíííí. Þetta er bara fyndið fólk og ég get ekki annað en vorkennt því, aumingja fólkinu sem hefur greinilega ekkert betra að gera en að leggja útlenska námsmenn í einelti fyrir það eitt að eiga börn. Æ Æ Æ Buuuuhhuuu...djöfulsins aumingjar!
-nei nei ekkert æst sko, bara í hláturskasti.
Það er langt síðan Ísland hljómaði freistandi en það er bara farið að freista meir og meir þrátt fyrir hrakspár um að allt sé nú á leið til helvítis. Mér finnst ég vera búin að heyra þetta alla tíð og enn tóri ég. Já já það er líka fullt af leiðinlegum hlutum í gangi á Íslandi, eins og tildæmis umferðarmenningin, verðlagið, veðurfarið, steingeldir stjórnmálamenn, jólavitfirringin og ég veit ekki hvað og hvað. En fjandinn hafi það, er einhver staður á jörðinni fullkominn? Er þetta ekki bara spurning um hugarfar?
Skrifaði Regína klukkan 20:09 |
sunnudagur, apríl 23, 2006
shit, nú eru bara þrjár vikur þangað til ég á að skila ritgerðinni. Nú hrekkur allt almennilega í gang. Það er ekki tími til að hugsa, bara skrifa, skrifa og skrifa...og hætta þessari fullkomnunaráráttu, hún er bara fyrir mér. Verð að einbeita mér að því að koma hlutunum bara niður á blað, smíða helvítis draslið og lagfæra svo seinna, ekki vera endalaust að reyna að fullkomna hvert einasta smáatriði og brenna svo úti á tíma.
AAAAAAAArrrrrrrrrhhhhhhhhhh
-Þetta SKAL takast, hvernig svo sem ég fer að því!!!!!!!!!!!!!
Skrifaði Regína klukkan 12:17 |
laugardagur, apríl 22, 2006
dæs
Æ, ég vorkenni mér pínu að þurfa að húka inni að læra á meðan sólin skín úti.
Skrifaði Regína klukkan 12:31 |
þriðjudagur, apríl 18, 2006
laugardagur, apríl 08, 2006
Nokkrir punktar
- ég er búin að fá mér barnastól á hjólið
- Benni kemur heim eftir viku
- Páskarnir eru eftir viku
- ég er sykurfíkill á háu stigi
- ég er nikótínfíkill á háu stigi
- ég er koffeinfíkill á háu stigi
- ég er búin að kaupa mér hlaupaskó
- ég er ekki dugleg að skrifa verkefnið mitt
- Smári fer í skólann 31.júlí
- Helgi Magnús er frekur og skemmtilegur
ég er farin í sturtu...ble
Skrifaði Regína klukkan 09:34 |
föstudagur, mars 31, 2006
mont...
Ég er ad fara á tónleika med RADIOHEAD 7.maí...liggaliggalái...liggaliggalái
Skrifaði Regína klukkan 08:12 |
þriðjudagur, mars 28, 2006
Barnastóll óskast!
Mig vantar svo mikið barnastól á hjólið (barnahjólastól hehehe). Datt í hug að henda inn auglýsingu hér.
Er ekki einhver sem þarf að losa sig við svoleiðis og vill selja mér?
Ég var ekki alveg tilbúin að borga 650 kall fyrir þennan sem fæst út í Amager Center og það var enginn stóll til í Cash and Carrry.
Það sem er helst í fréttum er annars að Smári snéri sig á ökklanum, eða hvað þetta nú heitir og haltrar um allt með hækjur og er stokkbólginn. Þannig að nú er ég nánast einstæð móðir næstu dagana og kannski vikurnar. Það er nú alveg til þess að komast yfir undir venjulegum kringumstæðum en þær eru bara ekki venjulegar núna. To do listinn minn er geðveikt langur og svo er ég að rembast við að hafa tíma til að skrifa ritgerðina sem gengur allt of hægt. En jæja, maður kemst yfir þetta eins og allt annað.
Gamalmenni eiga ekki að spila fótbolta og hana nú!
Skrifaði Regína klukkan 08:34 |
fimmtudagur, mars 23, 2006
Nú dregur aldeilis til tíðinda
jæja, þá er það ákveðið. Flytjum heim til Íslands næsta vetur, stefnum á að vera komin heim fyrir jól. úff og púff, skrítið, gaman, kvíði, tilhlökkun, spenna, hærigrautur. En hamingjusamasti Benni í heimi.
Skrifaði Regína klukkan 08:33 |
mánudagur, mars 13, 2006
þriðjudagur, mars 07, 2006
jess...
náði markaðsrannsóknarkúrsinum. læt mér það sko að kenningu verða að koma mér aldrei aftur í svona tímaþröng. frekar skila ég lokaverkefninu of snemma en að standa í þessari vitleysu.
maginn minn er eitthvað að mótmæla grænmetis átinu. svekk!
Skrifaði Regína klukkan 17:58 |
sunnudagur, mars 05, 2006
jæja, bjóst ekki alveg við að nýji mánuðurinn myndi taka á móti mér með veikindadrullu og leiðindum því fylgjandi. við skötuhjúin bæði veik um helgina. svoleiðis er gengur eiginlega ekki þegar engin amma og afi eru til afleysinga til að hugsa um börnin. reddast þó allt að lokum, því maður bara verður!
þá er það mánudagurinn skælbrosandi sem byrjar með tannlæknaheimsókn en vonandi ánægjulegum enda því þá fæ ég líka að vita hvað ég fæ fyrir verkefnið sem ég var allt of sein að byrja á. í framhaldi af því ræðst svo hvort ég byrja strax á lokaverkefninu eða lagfæri hitt. alltaf gaman að hafa smá spennu í lífinu...hmmm.
komst svo að því í dag að risið fyrir ofan íbúðina okkar á íslandi er til sölu og nú eru draumórar regínu farnir ærlega af stað!
Skrifaði Regína klukkan 21:17 |
föstudagur, mars 03, 2006
nýr mánuður. ný árstíð. nýtt verkefni. nýtt mataræði. nýr kafli. nýtt líf?
Skrifaði Regína klukkan 09:20 |
laugardagur, febrúar 25, 2006
föstudagur, febrúar 24, 2006
ég er snillingur...
í að koma mér í tímapressu. er í svoleiðis núna. þarf að skila skýrslu á mánudaginn sem ég er sama sem ekkert byrjuð á en er búin að hafa tvær vikur til að gera. þetta tekst engum nema snillingum eins og mér.
Skrifaði Regína klukkan 18:03 |
mánudagur, febrúar 20, 2006
jahérnahér. sumir dagar eru betri en aðrir, sérstaklega þegar maður fær það sem maður vill. það gerðist einmitt í dag. ég fór nebbla að hitta hann Martin vin minn á Nordatlantens Brygge og við náðum samkomulagi um að ég geri semsé lokaverkefnið fyrir Bryggjuna. ég glöð og mikið glöð. vei vei vei!
Skrifaði Regína klukkan 20:34 |
sunnudagur, febrúar 19, 2006
þriðjudagur, febrúar 14, 2006
meira af klósettþrifapælingum...
já athyglisvert þetta með klósettþrif gæjanna stelpur...hmm. Ætli það myndi virka ef maður myndi bara hætta að þrífa klósettið. Hvað ætli skítaþröskuldurinn sé hár? Ég hef prófað þessa aðferð með þvottinn og sú aðferð dugði í stuttu máli ekki. Það er líka verst að ég get bara ekki hugsað mér að bíða svo lengi með að þrífa klósettið til að láta á það reyna. En áhugaverð tilraun samt.
Skrifaði Regína klukkan 19:53 |

