miðvikudagur, mars 26, 2008

Vill einhver í Köben skipta við okkur um íbúð í sumar?

Við erum að tala um 2-3 vikur einhverntíman á tímabilinu 7. júlí til 18. ágúst.

fimmtudagur, mars 20, 2008

Djös maður! Ég er ennþá lasin og litli grís sýnist mér að verða það líka. Ég sem var komin í partýstuð. Á ég að trúa því að páskarnir séu að fara í veikindi? Ég ætla að prófa að síkreta heilbrigðið til mín.

mánudagur, mars 17, 2008

Í dag langar mig í allt sem er ekki hægt:

  • að vera ekki veik
  • að flytja
  • að fara með í Berlínarstelpuferðina sem er liðin
  • að fara til útlanda um páskana
  • að vera í hreinni íbúð

Já, svona getur þetta verið stundum. En er ekki best að hugsa bara jákvætt og hugsa sér bara að þetta sé einmitt það sem ég er að fara að gera og þá kannski bara rætist það? hmmmm....

Ég er viss um að Pollýanna er sammála þessu.

Ji hvað mig er farið að langa í gott partý...

mánudagur, mars 03, 2008

Dóra mín, hvað segirðu, ertu bara búin að loka síðunni? Ég sakna þín.

sunnudagur, mars 02, 2008

Svefn, mataræði og hreyfing...engar yfirlýsingar, bara forgangsatriði.